Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband

Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor emiritus í stjórnmálafræði, segir úrsögn Jóns Gnarrs úr þingflokki Viðreisnar hafa komið á óvart, atburðarrásin sé óvenjuleg. „Það er ekki óvenjulegt að þingmenn ákveði að yfirgefa sinn þingflokk en venjulega fylgir því að þeir ganga líka úr flokknum og hætta að gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.“Ólafur segir að að sumu leyti megi líkja þessum venjulega viðskilnaði þingmanns og þingflokks við hjónaskilnað. Hann segir að í tilviki Jóns sé þó önnur staða uppi. Jón gerði samning um að hann myndi ekki sækja þingflokksfundi lengur en áfram myndi hann styðja ríkisstjórnina og halda sínum sætum í þingnefndum sem fulltrúi Viðreisnar. „En þessi atburðarás minnir mig ekki á hjónaskilnað heldur miklu frekar yfirlýsingu um opið hjónaband.“Ólafur telur að úrsögnin mun
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd