Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands á morgun. Sólveig segir nokkuð ljóst hvernig sú kosning fari.„Þetta er kosning sem ég mun tapa og mun ekki vinna, það er alveg ljóst.“Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins fyrr í dag. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er óvenjulegt á landsþingi ASÍ. Um 61% greiddu atkvæði með tillögunni en tvo þriðju atkvæða hefði þurft til að tillagan yrði samþykkt. Aðeins munaði 19 atkvæðum að tillagan yrði samþykkt.„Sólveig segir þessar niðurstöður varpa skýru ljósi á stöðuna, í raun séu þær spá um hvernig fari á morgun.“„Rétt rúm 60% sem vilja fækka embættum sem segir okkur allt um stöðuna.“ S
Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd