Fjölmörg handtök eru framundan á Siglufirði næstu daga við að meta tjón og taka til eftir óveðrið sem gekk þar yfir í gær. Þök fuku af þremur húsum og ollu tjóni víða um bæinn.Jóhann K. Jóhannsson er bæði slökkviliðsstjóri og forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð:„Það er heppni að enginn hafi slasast, það er alveg staðreynd. Þetta eru engir smá flekar sem fara á flug þegar heilu húsþökin lyftast af húsunum og lenda við hliðina á þeim og splundrast með braki og þakplötum sem geta farið út um allt. Það sköpuðust þannig aðstæður víða í bænum í gær.“ ALLT ÓNÝTT INNANDYRA Ásta Gunna Kristjánsdóttir og Steinarr Steinarrsson komu að húsi sínu við Túngötu gjöreyðilögðu eftir storminn í gær. Ásta sagði í samtali við fréttastofu að ef hún hefði legið í rúminu þegar veðrið gekk yfir væri hún ekki li