Varnarmálaráðherra Bretlands hvetur Bandaríkin til að styðja við Úkraínu. Spenna milli Bandaríkjanna og Úkraínu hefur aukist vegna olíukaupa Bandaríkjanna af Rússum og vopnahléi í árásum á orkuinnviði sem aldrei varð.Í ávarpi á fundi hugveitu í Washington DC sagði Wes Streeting, varnarmálaráðherra Bretlands, að það væri Bandaríkjunum í hag að halda stuðningi sínum við Úkraínu áfram. Hann sagði mikil tækifæri fólgin í samstarfi ríkjanna í varnarmálum og að Úkraína myndi efla hernaðarmátt Bandaríkjanna til lengri tíma.Þá benti Streeting á að þótt Bandaríkin væru landfræðilega langt frá átökunum milli Úkraínu og Rússlands þá borgaði sig aldrei að verðlauna árásarhneigð. Hann sagði að ef hægt yrði að breyta landamærum með valdi og gera fullveldi þjóða háð samningaviðræðum næðu afleiðingarnar l