Fimm verkefnastjórum sem hafði verið sagt upp hjá Reykjavíkurborg var boðið starf sitt aftur. Fjórir þeirra fengu boð um tímabundna ráðningu.Stöðurnar eru verkefnastjóri samskipta, verkefnastjóri stafrænnar miðlunar, verkefnastjóri umbóta og forgangsverkefna auk tveggja almennra verkefnastjóra. Einum þeirra var boðið breytt launaumhverfi.Þetta kemur fram í svörum Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu. Þar voru orð Kára Sigurðssonar, formanns Sameykis, borin undir borgina. Hann sagði í september að hluta þeirra sem var sagt upp í sumar hefði verið boðnar tímabundnar stöður og sumum breytt launaumhverfi.Kári sagði enn fremur að meirihluti borgarstjórnar hefði áttað sig á því að ráðist hefði verið í of umfangsmiklar uppsagnir.„Um er að ræða túlkun hans á málinu. Borgin getur hins vegar