Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra telur sjálfsagt að Alþingi samþykki frumvarp um bókun 35 við EES-samninginn. Hann segist hins vegar ekki vita hvort Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, myndi þá afturkalla mál sem stofnunin hefur höfðað fyrir EFTA-dómstólnum. Því verði stofnunin sjálf að svara.