Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026

Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannauðssjóðurinn Hekla kemur líka að verkefninu. Ýmis atriði eru skoðuð eins og stjórnun sveitarfélagsins, samskipti og andrúmsloft á vinnustaðnum, aðstæður og aðbúnaður starfsmanna og hvernig starfsfólki líður í starfi og hvernig það metur kjör sín. Sveitarfélög á Suðurlandi hafa verið mjög dugleg að verða Sveitarfélög ársins en árið 2025 var það Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur varð í öðru sæti og Hrunamannahreppur í því þriðja. Í öðru sæti núna varð Grímsnes- og Grafningshreppur, Grundafjarðarbær var í því þriðja og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í fjórða sæti og Sveitarfélagið Ölfus varð í fimmta sæti.
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd