RÚV / KveikurStyrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka frá 1. nóvember næstkomandi, samkvæmt nýrri reglugerð um Loftslags- og orkusjóð.Styrkur til nýrra fólksbíla fer úr 500 þúsund krónum í 400 þúsund og verðþak styrkhæfra bíla lækkar úr tíu milljónum króna í átta milljónir. Styrkir til kaupa á rafknúnum sendibílum verða hins vegar óbreyttir, 500 þúsund krónur, og verðþakið áfram tíu milljónir.Auk þess verður bannað að flytja styrkt ökutæki úr landi innan þriggja ára frá því styrkurinn er veittur.Umsóknir sem eru samþykktar fyrir 1. nóvember lúta eldri reglum, að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt.