Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár

Við Engjateig í Laugardal á að bora eftir heitu vatni - þar er reyndar nánast örugglega heitt vatn enda nokkrar borholur í kring. Framkvæmdir hófust formlega í dag.„Við ætlum sem sagt með þessu vonandi að auka afkastagetu okkar um allt að 40% ef allt gengur að óskum,“ segir Sólrún Kristinsdóttir, framkvæmdastýra Veitna.„En jarðvarminn er svo mikið ólíkindatól þá vitum við í rauninni ekki hvað við munum fá úr hverri holu.“ EKKI AÐ FARA YFIR MÖRK SVÆÐISINS Ekki hefur verið borað eftir heitu vatni í Laugardalnum í 44 ár, eða síðan 1982. Laugardalurinn hefur yljað borgarbúum í næstum 100 ár því fyrstu borholurnar voru við Þvottalaugarnar.„Við vitum að lághitaholurnar okkar eru rosalega verðmætar á veturna og við getum hvílt þær á sumrin. Með því erum við að auka forðagetu okkar fyrir köldus
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd