Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að kostnaði við tímabundna ráðgjöf Heiðu Kristínar Helgadóttur vegna utanríkis- og Evrópumála og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB hafi verið mætt með því að ráða ekki annan aðstoðarmann í ráðuneytið meðan á ráðgjöfinni stóð. Útgjöld ríkissjóðs hafi því ekki aukist.