Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðu Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra svara um málshöfðun Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunar 35 við EES-samninginn. Þingmennirnir vildu meðal annars vita hvort ráðherrarnir teldu að ESA myndi draga mál sitt gegn Íslandi til baka ef Alþingi samþykkti frumvarp utanríkisráðherra um innleiðingu bókunarinnar. „Ég veit það ekki, ég bara veit ekki hvað...