Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun

„Það eru mikilvægir fundir skipulagðir í dag með framkvæmdastjóra NATO, Frakklandsforseta og forsætisráðherrum Póllands, Danmerkur og Belgíu,“ skrifaði Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti á X (Twitter), eftir að flugvél hans lenti á flugvellinum í Brussel um hádegisbilið í dag.Zelensky sækir svo á morgun leiðtogafund Evrópusambandsins, sem hófst í dag, en stærsti dagskrárliðurinn á morgun fjallar um stöðuna í Úkraínu og leiðir til að halda áfram og auka stuðning Evrópusambandsins.„Allir í Evrópu vilja að þetta stríð taki enda,“ skrifaði Zelensky í færslu sinni. „Til þess þarf að senda skilaboð um styrk - meiri pressu á Rússa og meiri stuðning við varnir Úkraínu.“Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er kominn til Brussel, þar sem hann sækir leiðtogafund Evrópusambandsins á morgun. Zelensky á fun
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd