Kópavogsbær ætlar að sækja fullar heimtur vegna vanefnda vertakafyrirtækis við byggingu Barnaskóla Kársness. Kröfurnar hljóða upp á 3,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum en málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í dag.Kostnaður Kópavogsbæjar af Barnaskóla Kársness nálgast níu milljarða króna sem er töluvert yfir upprunalegri kostnaðaráætlun.Kópavogsbær samdi við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher árið 2021 um endurbyggingu skóla við Skólagerði. Skólinn heitir í dag Barnaskóli Kársness og er samrekinn leik- og grunnskóli.Innri kostnaðaráætlun Kópavogsbæjar fyrir heildarverkefnið nam í júní 2020, þegar ákveðið var að ráðast í verkefnið, um 4,8 milljörðum króna sem er að núvirði um 6,7 milljarðar. Þá nam verksamningsupphæðin 3,2 milljörðum króna og átti að l