Einn lést í óveðrinu sem gekk yfir Færeyjar í gær, sem tilkomið var vegna sama lægðakerfis og olli usla hér á landi. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að andlátið hafi orðið á Suðurey og að lögregla segi það hafa borið að vegna aðskotahlutar sem fauk á manninn. Ástvinum hans hafi verið gert viðvart. Kringvarp, ríkisútvarp Færeyja, segir manninn hafa verið 40 ára gamlan. Engin vitni hafi orðið að andlátinu.Hviður í Þórshöfn mældust allt að 60 m/s í gær og víða hellirigndi. Ferjusiglingum var frestað og aurskriður lokuðu vegum.Sama lægðakerfið olli usla bæði í Færeyjum og hér á landi í gær.Skjáskot / earth.nullschool.net