Hætta við streymi frá aftöku fjöldamorðingja

Aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi geðlæknis í bandaríska hernum, sem drap 13 manns á Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009, verður ekki streymt opinberlega eins og fyrirhugað var.Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í dag. Hann segir á Truth Social að töluverður fjöldi „vel meinandi og góðra“ einstaklinga hafi ekki viljað þurfa að horfa á hann deyja. Hasan, sem Trump segir að sé mjög vondur og illkvittinn maður, verður líflátinn af aftökusveit 3. desember.Pete Hegseth, hermálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti upphaflega áætlanir um að Hasan skyldi líflátinn í beinu streymi. J.D. Vance varaforseti hefur áður sagst ekki ætla að horfa á útsendinguna.Í morgun bárust fréttir af því að á áttunda tug fyrrverandi hershöfðingja og aðmírála innan bandaríska hersins legðust gegn „villimannsl
Hætta við streymi frá aftöku fjöldamorðingja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd