Gadi Eisenkot, helsti keppinautur Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra í komandi þingkosningum í Ísrael, heitir því að binda endi á yfirráð Hamas-samtakanna yfir Gaza á 18 mánuðum, beri hann sigur úr býtum. Eisenkot kveðst ætla að gera það með því að annað hvort beita Ísraelsher með „frumlegri hætti“ en áður gegn hernaðararmi Hamas, eða með því að byggja á vopnahlésáætlunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem kveða á um afvopnun samtakanna. „Í dag heiti ég almenningi þessu: Frá því að ég stíg fæti á forsætisráðherraskrifstofuna líða ekki 18 mánuðir þar til Hamas stýra Gaza ekki lengur,“ sagði Eisenkot á blaðamannafundi Yashar-flokksins. Yashar-flokkurinn, flokkur Eisenkots, er miðjuhægriflokkur og í nýlegri könnun var honum spáð 23 þingsætum en Likud-flokki Netanjahús 20. Kannanir fyrir