„Fyrst og fremst er það fólkið sjálft sem ber ábyrgð á eigin öryggi. Þannig virkar það. En auðvitað komum við öll að,“ segir Dagbjartur Kr. Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu.Mikil ölduhæð var í Reynisfjöru í gær. Nokkrir, meðal annars barn, fengu yfir sig sjó. Landeigandi sagði að fólkið hefði verið það ofarlega í fjöruborðinu að engin hætta hefði verið á að það skolaðist út.Viðbragðsáætlun var virkjuð vegna ölduhæðar og fjörukambi austast í fjörunni lokað.Ýmsar öryggisráðstafanir voru gerðar eftir banaslys í fjörunni í ágúst í fyrra. Meðal annars er bannað að fara niður að stuðlabergi þegar rautt ljós blikkar og lokunarhlið var sett í fjörukambinn.Dagbjartur telur að ráðstafanirnar dugi. Honum skilst að í gær hafi sjórinn komið að fyrr en öldufarsspá gerði ráð fy