Fjármálastjóri Landsvirkjunar hættir

Breytingar eru fram undan hjá Landsvirkjun því fyrirtækið þarf ekki aðeins að ráða nýjan forstjóra heldur varð ljóst í dag að einnig þarf að ráða nýjan fjármálastjóra.Rafnar Lárusson, sem hefur verið fjármálastjóri Landsvirkjunar síðustu 16 árin, greindi samstarfsfólki sínu frá því í dag að hann hyggist láta af störfum. Tilkynningin birtist á innri vef fyrirtækisins og á Linkedin-síðu hans.„Ástæðan er sú að fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að hætta um leið og Hörður. Mér finnst eðlilegt að gefa nýjum forstjóra þannig færi á að velja sér fjármálastjóra, rétt eins og Hörður gerði á sínum tíma.“Rafnar var ráðinn fjármálastjóri Landsvirkjunar í september 2010, nokkrum mánuðum eftir að Hörður var ráðinn forstjóri. „Ég vildi láta ykkur vita af þessari ákvörðun, þótt ég sé ekki á leið úr hús
Fjármálastjóri Landsvirkjunar hættir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd