Djúp haustlægð gekk yfir landið með látum í gær og nótt, með stormi, rigningu og hríð. Síðustu viðaranir féllu úr gildi í morgun, vegna hríðar á landinu norðaustanverðum, vetrarfærð er enn á vegum víða um landið.Veðurhamurinn virðist hafa verið einna mestur nyrst á Tröllaskaga. Mikið tjón varð á eignum á Siglufirði, þök rifnuðu af húsum, rúður brotnuðu og björgunarsveitir höfðu vart undan að festa brak og lausamuni. Fyrir þann landshluta var gefin úr gul veðurviðvörun.Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum á Veðurstofunni, segir veðrið heilt yfir að hafa verið í takt við spár. SJÁVARFLÓÐ OLLU EKKI EINS MIKLUM VANDRÆÐUM OG ÓTTAST VAR „Mesti vindhraðinn á landinu mældist 42,0 m/s á Stórhöfða, það var mjög hvasst í Vestmannaeyjum þarna fyrst um morguninn og mesta hvi