Lögreglunni á Austurlandi hefur hvorki borist tilkynning né kæra vegna atviks þar sem fimm þingmenn eru sagðir hafa farið í leyfisleysi í Selárlaug í Vopnafirði. Þá kemur fram í svari frá lögregluembættinu að húsbrot samkvæmt hegningarlögum sæti meðferð hjá lögreglu „að kröfu þess sem misgert er við“, eins og það er orðað í svarinu. Í ljósi þess að Vopnafjarðarhreppur hefur...