Fyrrverandi hershöfðingjar og aðmírálar í bandaríska hernum þrýsta á hermálayfirvöld að hætta við að sýna opinberlega frá aftöku Nidal Hasans 3. desember.Alls skrifa 72 fyrrverandi, háttsettir starfsmenn hersins undir og segja fyrirhugað streymi frá aftökunni vera villimannslega misbeitingu valds.Þá gjalda þeir varhug við að gera píslarvott úr Hasan með því að sýna opinberlega frá aftökunni.Hasan, sem er fyrrverandi geðlæknir innan vébanda Bandaríkjahers, var dæmdur til dauða fyrir að skjóta fyrirvaralaust 13 félaga sína í hernum til bana á Fort Hood-herstöðinni í Texas.Í frétt BBC um málið er rakið hvernig stjórnmálamenn úr röðum beggja flokka vestanhafs hafa lagst gegn því að sýna beint frá aftökunni. J.D. Vance varaforseti segist ekki ætla að horfa á streymið þó hann sé fylgjandi því að