Háir vextir, þrálát verðbólga og minnkandi eftirspurn reyna á íslensk fyrirtæki. Rekstrarumhverfið hefur reynst erfiðara en vonir stóðu til og boðaðar skattahækkanir bæta við áskoranirnar. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir undirstöður hagkerfisins þó sterkar og vaxtatækifæri til staðar, meðal annars í fiskeldi og gagnaverum.