Hvellurinn á Siglufirði meiri en búist var við

Talsverð vinna er framundan næstu daga, einkum á Siglufirði, eftir óveðrið sem gekk yfir í gær. Þetta segir Hermann Karlsson aðalvarðstjóri í aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra.Hann segir hvellinn á Siglufirði, þar sem hviður fóru upp í 55 metra á sekúndu í gær, hafa verið meiri en hefði verið búist við.Þó nokkur hús eru skemmd í bænum auk lausamuna og bíla. Björgunarsveitir frá Dalvík, Akureyri og Ólafsfirði komu þar að aðgerðum.Óveðrinu slotaði seinni partinn í gær og aðgerðastjórn hófst handa við að fyrirbyggja frekara tjón.„Inn í kvöldið varð rólegt. Inn í nóttina þá gengu hlutirnir vel fyrir sig og við drógum seglin okkar saman jafnt og þétt. Um eitt í nótt vorum við komin með allan okkar mannskap í hvíld,“ segir Hermann.Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra til klukkan 10.
Hvellurinn á Siglufirði meiri en búist var við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd