Þak skóla í pakistönsku borginni Peshawar hrundi í dag með þeim afleiðingum að tugir festust undir brakinu. 27 nemendur og einn kennari létust. Yfir 30 til viðbótar slösuðust og eru sex þeirra í lífshættu.Talsmaður almannavarna sagði að óttast væri að fleiri börn væru föst í rústum skólans. Íbúi sem AFP-fréttastofan ræddi við kenndi því um að skólinn hefði verið reistur úr lélegu byggingarefni og krafðist opinberrar rannsóknar. Fréttastofan segir nokkuð algengt að hús hrynji í Pakistan vegna þess að ekki sé nægilega vandað til við byggingu húsa. Á annan tug barna fórst þegar hús sem bauð upp á námsaðstoð hrundi í Lahore í austurhluta Pakistans.Forseti og forsætisráðherra Pakistans lýstu mikilli sorg vegna slyssins.