Hafnfirðingar mótmæla nýju tímabundnu hverfi

Fjölmenni var á íbúafundi á Ásvöllum í Hafnarfirði á þriðjudagskvöld um fyrirhugaðar tímabundnar 260 íbúðir við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hafnarfjarðarbær gerði samning við Styrkás fasteignir í síðasta mánuði um uppbyggingu á tímabundnu starfsmannahverfi.Um er að ræða tíu hektara land þar sem til stendur að setja upp gámahverfi fyrir erlent starfsfólk sem er hér vegna tímabundinnar vinnu. Húsnæðið verður einungis leigt til starfsfólks fyrirtækja en ekki einstaklinga. Þá er það ekki ætlað fjölskyldum eða til varanlegrar búsetu eldra fólks. Lóðarleigusamningur yrði gerður til tíu ára en í framhaldi á Styrkás Fasteignir rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis.Samkomulagið var samþykkt í bæjarráði 17. september með fjórum atkvæðum gegn einu. Fullt
Hafnfirðingar mótmæla nýju tímabundnu hverfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd