Átta látnir af völdum hitabeltisstormsins Rakelar

Að minnsta kosti átta eru látnir í Mexíkó eftir að hitabeltisstormurinn Rachel reið yfir strendur landsins við Kyrrahafið.Frá því í síðustu viku hefur stormurinn valdið sérstaklega miklum rigningum og flóðum í ríkinu Baja California sem á landamæri að Bandaríkjunum.Mexíkóski herinn heldur utan um björgunaraðgerðir en 32 hefur verið bjargað með þyrlu. Tveggja er þó enn þá saknað. TVEIR AÐRIR STORMAR VIRKIR Fellibyljatímabilið á Kyrrahafinu er talið verða ofsafengnara en fyrri ár vegna El Niño veðurfyrirbrigðisins sem hitar yfirborð sjávar og raskar vind- og regnmynstrum.Tveir aðrir stormar, nefndir Simon og Judy, eru á sveimi yfir Kyrrahafinu nærri Mexíkó eins og er en hvorugur þeirra er talinn líklegur til að ná landi. Simon hefur þó valdið úrhellisrigningum í ríkjunum Jalisco og Guerre
Átta látnir af völdum hitabeltisstormsins Rakelar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd