Síldarvinnslan selur Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson

Síldarvinnslan hefur selt Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson. Skipið, sem smíðað var árið 1999, hefur verið verkefnalaust síðan það var sett á sölu í upphafi árs 2024. Frá þessu greina fyrirtækin á vefsíðum sínum.Í sumar var Bjarni Ólafsson hins vegar óvænt tekinn aftur í þjónustu þegar annað uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, Barði, tjónaðist verulega. Þá kom upp eldsprenging í vélarrúmi skipsins á leið þess frá Færeyjum og litlu mátti muna að illa færi.Bjarni Ólafsson hefur verið gerður út á síld og kolmunna í fjarveru Barða en á þriðjudaginn tóku nýjir eigendur við skipinu í Neskaupstað þaðan sem það hélt rakleiðis á síldveiðar.Bjarni Ólafsson var smíðaður árið 1999 og er nú kominn í eigu Samherja.RÚV / Haukur Holm
Síldarvinnslan selur Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd