Allhvöss eða hvöss norðvestanátt er víða um landið þrátt fyrir að veðrið hafi róast mjög frá því sem gekk á í gær. Hríðarveður er norðanlands.Tvær gular viðvaranir eru í gildi vegna hríðarveðurs, önnur á Norðurlandi eystra til klukkan tíu og hin á Austurlandi að Glettingi til klukkan ellefu.Vetrarfærð er víða um land, einkum þó á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þetta á þó líka við á fjallvegum víða um land, svo sem á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Unnið er að mokstri og hreinsun. Nýjustu upplýsingar um færð er að finna á umferðarvef Vegagerðarinnar.Það dregur úr vindi þegar líður á daginn en suðaustan- og austanlands má búast við hvössum norðvestan vindstrengjum fram undir kvöld.Veðurspáin er svohljóðandi:13-20 m/s og snjókoma eða slydda, en úrkomuminna sunnan heiða. Dregur úr vindi og ofanko