Veðrið sem gengið hefur yfir landið síðasta sólarhringinn er nú smám saman að ganga niður en gular viðvaranir verða þó í gildi fram undir hádegi. Birgir Örn Höskuldsson veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir í samtali við fréttastofu að spár hafi gengið eftir. Hvasst hafi verið í gær og úrhellisrigning fyrir austan. Þá hafi hríð skollið á á norðanverðu landinu. Nú sé lægðin að fjarlægjast landið og með því dragi úr vindi.„Í rauninni styttir upp þegar líður á daginn og eftir hádegi verður komið ágætis veður um mest allt land nema helst að það mun blása nokkuð á Austurlandi og mögulega Suð-Austurlandi.“ DREGIÐ ÚR AÐGERÐUM ÚR MIÐNÆTTI Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, stýrði aðgerðum í gær. Hann var kominn aftur á vaktina snemma í morgun og sagði a