Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffihúsi Dýrheima er eigendum velkomið að taka með sinn besta vin. Jóhanna Líf Halldórsdóttir, innkaupa- og markaðsstjóri Dýrheima, segir markmið kaffihússins vera að byggja upp samfélag hunda og katta.„Við erum að búa til stað þar sem fólk getur komið og fengið sér góðan kaffibolla, þjálfað hundinn, leyft honum að fara út á leiksvæðið og leika sér og einmitt þjálfað í þessum aðstæðum.“Á kaffihúsinu er ekki einungis í boði kaffi heldur einnig puppoccinu.„Þú getur fengið þér cappuccino og svo puppoccinu fyrir hundinn þinn. Þetta er í rauninni hvolpamjólk fyrir hundana, við viljum ekki gefa þeim rjóma eða neitt svoleiðis á kaffihúsinu.“