Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf hafa hagað sínum samningum þannig að þeir séu í samræmi við lög. Honum þyki leitt að heyra hvernig minni samkeppnisaðilar upplifa framgöngu Ölgerðarinnar á markaði. Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Ölgerðinni á föstudag og hefur hafið rannsókn á meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu.Stjórnarformaður Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, hafnar því að einkaréttarsamningar séu gerðir við veitingahús og aðra stórnotendur. Komi einhverjar brotalamir í ljós við rannsókn Samkeppniseftirlitsins séu það mistök sem fyrirtækið axli ábyrgð á. „LEITT AÐ HEYRA HVERNIG MINNI SAMKEPPNISAÐILAR ERU AÐ UPPLIFA OKKAR FRAMGÖNGU“ Í Kveik í