Tekið að flæða að húsum í Vík

Sjógangur við Vík í Mýrdal. Mynd úr safni.Aðsend/Einar Freyr ElínarsonNokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í samtali við fréttastofu ölduhæðina meiri en spár gerðu ráð fyrir og að grannt verði fylgst með framvindu mála.Hann segir jafnframt að hjáleið verði mögulega opnuð, sem hafi verið í undirbúningi síðustu daga. Mbl.is segir frá því að tekið sé að flæða að iðnaðarbyggingum austast í bænum og að björgunarsveitin Víkverji hafi staðið í rýmingum.
Tekið að flæða að húsum í Vík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd