Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyrirtæki komist inn á þá. Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart. „Það er auðvitað þannig að við erum í reglulegum samskiptum við fyrirtæki á þessum markaði sem og öðrum, svo við erum að fá fjöldann allan af ábendingum. Þannig það er svo sem ekki margt sem kemur okkur á óvart í þessari reifun.“Páll segir að lítil fyrirtæki sem upplifi hindranir snúi sér til Samkeppniseftirlitsins.„Þessi markaður er ekkert öðruvísi hvað það varðar og það er gríðarlega mikilvægt fyrir samkeppni í landinu að markaðir séu opnir og að það séu ekki miklar hindranir og ekki hindranir fyrir nýja aðila til að komast inn á markaði og starfa við hlið þeirra stærri.“Viðmæ