Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu

Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni.„Eins og við gerðum ráð fyrir fór lægðamiðjan inn á Suðaustur- og Austurlandið svona milli fjögur og fimm í dag. Þá dró heldur úr vindi þar í kring, sem sagt Suðvestur-, Suður- og hluta Austurlands,“ segir hún.Á Norðurvesturlandi er nú appelsínugul hríðarviðvörun í gangi. Þar hefur snúist í norðanátt.Á Norðurlandi eiga hríðarviðvarnir að taka við hver á fætur annarri með kvöldinu. „Norðausturlandið seint í kvöld og svo Austurland að Glettingi. Þá er um gula hríðarviðvörun að ræða þar,“ segir Hera.Síðustu viðvaranirnar falla úr gildi á Norðausturlandi í hádeginu á morgun. Búast má við að annað kvöld snúist í suðves
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd