Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambjóðendur til forseta vilja meira samtal innan hreyfingarinnar. Það var við hæfi að Lúðrasveit verkalýðsins opnaði þingið með því að leika alþjóðlegan baráttusöng verkalýðsins.Fráfarandi forseti Finnbjörn A. Hermannsson talaði í ávarpi sínu um framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu, sem er heiti þingsins að þessu sinni, og líka um kjarasamningana sem tókst að bjarga fyrir horn í síðustu viku:„Ég held að allir átti síg á virði þess að hafa fyrirsjáanleika á vinnumarkaði. Við þurfum að byrja næstu samningalotu helst ekki síðar en strax.“Forsenduákvæði kjarasamningana brast því verðbólgan mældist meiri í ágúst en miðað var við í samningunum.„Þeir sem t