Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru

Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkjað viðbragðsáætlun vegna ölduhæðarinnar og sett upp lokunarpóst klukkan hálf fjögur í dag við afleggjarann að bænum Görðum og gæslumenn á neðra bílastæðinu, þar sem talið er að geti flætt yfir.Landeigendur segja það hafa verið gert fullseint. Einn þeirra, Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, segir í samtali við fréttastofu að fólk statt í fjörunni hafi fengið yfir sig öldu en verið það ofarlega í fjöruborðinu þannig að engin hætta var á að það skolaðist brott.„Við ákváðum að virkja tilbúna viðbragðsáætlunina vegna ölduhæðarinnar. Hæsti toppurinn er milli 6 og 9 og háflóðið er 7:40 og því mikilvægt að loka.“ Ragnhildur segir landeigendur hafa leiðbeini
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd