Verðbólga í Bandaríkjunum hækkaði meira en spáð var

Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð hafði verið. Verðbólga mældist 3,4% í ágúst og hefur hún því hækkað tvisvar í röð. Þetta gerir að verkum að líklegra er talið en áður að seðlabanki Bandaríkjanna hækki stýrivexti annað sinn í röð við næstu stýrivaxtaákvörðun í lok mánaðar. Í gær töldu markaðir um 22% líkur á stýrivaxtahækkun en í dag eru líkurnar taldar 51%.Tæplega 10% verðhækkun á eldsneyti á stærstan þátt í hærri verðbólgu, eða ríflega helmingshlut. Þessi hækkun skýrist ekki síst af stríðsrekstri Bandaríkjanna í Íran sem, síðan í byrjun árs, hefur þrýst heimsmarkaðsverði á olíu upp. Þá hafa flugfargjöld sömuleiðis sín áhrif, en hækkanir á þeim er síðan að rekja til hærra elds
Verðbólga í Bandaríkjunum hækkaði meira en spáð var

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd