Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd

„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.Þar hafa hviður farið upp í allt að rúmlega 40 metra á sekúndu. Ölduhæðin hefur ekki verið svo mikil.„Norðanáttin kemur þannig að það ná ekki að myndast neinar öldur af viti. Sjávarhæðin náði upp á kantinn samt.“Baldur segir að nokkur kör hafi farið á flug um bryggjuna en fólk hafi verið vel undirbúið undir veðrið.„Eitt álkar tók kollhnís þvert yfir bryggjuna út í sjó.“ Hann segir að þrátt fyrir það hafi verið vel frá því gengið. „Vindurinn náði taki á því.“Vindáttin hefur verið nokkuð heppileg upp á höfnina á Skagaströnd en það gæti breyst ef hún snýst.Hviður hafa farið upp í rúmlega 40 m/s á Skagaströnd. Kar fauk út í sjó og sjávarhæð náði upp á kantinn á höfninni.
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd