Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví

Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði um miðjan september. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að þau viti af kvínni og eigendurnir vinni við að losa hana.„Mér skilst að þeir séu að reyna að sæta færis að sækja hana. Mér skilst að hún sé þannig staðsett að það er ekki hlaupið að því að sækja hana. Það er unnið að því að fjarlægja hana úr firðinum.“Arctic Fish er eigandi kvíarinnar og er ábyrgt fyrir því að fjarlægja hana. Daníel Jakobsson er forstjóri fyrirtækisins.„Í einhverju veðri um daginn losnaði þetta upp og rak upp í fjöru og menn hafa verið að bíða eftir veðri til þess að tosa þetta út. Það er búið að vera brjálæðislega vont veður og þessir fáu dagar sem er gott veður þarf að nota til þess að sinna fiskinum á kvíunum.“Kví eins og þessi vegur á bilinu 20-30 t
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd