Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum

Tíu þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki kalla eftir skýrslu frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Markmiðið er að kalla fram heildstæða mynd af gæðum þjónustu á heimilunum og eins hvort stjórnvöld hafi næg gögn og mælikvarða til þess að fylgjast með þeim.Þingmennirnir segja að nýleg umfjöllun Kveiks um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum sé einn mælikvarði sem geti varpað ljósi á lyfjamiðaða umönnun, lyfjaöryggi og aðgengi að öðrum úrræðum, þótt það sé ekki meginviðfangsefni skýrslubeiðninnar.Á næstu árum stendur fyrir dyrum talsverð fjölgun hjúkrunarrýma og því þykir fyrirspyrjendum brýnt að meta innihald og gæði þjónustu, ekki síður en fjölda rýma. Fjölgunin þurfi að leiða til öruggrar, faglegrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu sem auki lífsgæ
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd