Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi á Alþingi í dag fyrirhugaða tilraun með vítissóda í Hvalfirði og sagðist taka undir mótmæli gegn henni. Hann dró í efa loftslagsávinning verkefnisins og sagði óljóst hvort kolefnisbindingin yrði meiri en losunin vegna framleiðslu og flutnings efnisins.