Arnaldur Grétarsson, frambjóðandi til forseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir það eitt stærsta verkefni nýs forseta að finna lausn á þeim átökum sem hafa einkennt sambandið að undanförnu. Hann telur að möguleg úrsögn Eflingar úr ASÍ yrði öllum til tjóns en bendir á að hótanir um úrsögn séu ekki nýjar af nálinni í aðdraganda þinga sambandsins.