Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands

Lögreglan í Tyrklandi gerði rassíu í húsakynnum Halk TV, vinsælustu fréttastöð landsins, í morgun. Útsendingum var hætt og fólk hliðhollt stjórnvöldum komið í æðstu stöður.Halk TV hefur hingað til verið gagnrýnin á einræðistilburði Receps Erdogan Tyrklandsforseta. Einnig var ráðist í húsleitir á heimilum starfsmanna þar sem 11 manns voru teknir fastir, þar á meðal fjölskyldumeðlimir stjórnarformanns Halk TV. Hann er nú í haldi grunaður um mútur og peningaþvætti. Þetta er aðeins nýjasta útspil stjórnar Erdogans gegn fjölmiðlum. Fyrir tveimur vikum lokaði stjórn Erdogans fréttasíðunni T24 vegna meints hinsegin áróðurs. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands.EPA / VYACHESLAV PROKOFYEV / SPUTNIK / KREMLIN POOL
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd