Slökkvilið Fjallabyggðar hefur í dag aðstoðað viðbragðsaðila á Siglufirði við að fergja húsþökin þrjú sem fuku í bænum í illviðrinu sem hefur gengið þar yfir. Veðrið hefur skánað örlítið og nýta viðbragðsaðilar nú tímann til að búa sig undir næstu óveðursbylgju sem kemur frá norðri í kvöld.