Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara

Saksóknari í máli breska grínistans Russels Brand segir hann hafa verið vægðarlausan og einbeittan kynferðisbrotamann þegar aðalmeðferð í máli gegn honum hófst í Lundúnum í dag.Brand, sem er 51 árs, komst til metorða fyrir framkomu sína í útvarpi, sjónvarpi og síðar bíómyndum. Hann er sakaður um nauðgun og kynferðisofbeldi gegn sex konum. Ákæran er í sjö liðum. Hann neitar alfarið sök.Riel Karmy-Jones saksóknari segir að meint brot hafi átt sér stað á árunum 1999-2009, um það leyti sem ferill Brands var að ná flugi. Hún lýsti því í smáatriðum fyrir dómi í dag hvaða háttsemi Brand á að hafa gerst sekur um, meðal annars gegn konu sem var 21 árs þegar meint brot voru framin. Hún er sú yngsta meðal kvennanna sem saka Brand um kynferðisofbeldi. Konurnar stigu fram árið 2023 og árið 2025 eftir a
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd