Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Minneapolis í Minnesota dagana 13.–14. október. Markmið ferðarinnar er að efla viðskiptatengsl Íslands og Bandaríkjanna og koma á beinum tengslum íslenskra og bandarískra fyrirtækja og hagaðila.