Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki

Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennara óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram.
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd