Siglufjörður virðist fara hvað verst út úr óveðrinu sem gengur yfir landið. Þar hefur vindur farið upp í 55 metra á sekúndum í hviðum.Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafa skjólveggir fokið, rúður brotnað og bílar skemmst. Íbúum hefur verið leiðbeint að halda sig heima.Þak fór af í heilu lagi af einbýlishúsi í bænum í morgun. Björgunarsveitir eru að störfum og tjónið talsvert.Guðni Sveinsson, íbúi við Suðurgötu, segir óveðrið vera í stærri kantinum. Hann hefur búið í bænum í 70 ár. Hann segir nú reynt að bjarga því sem bjargað verður.Hann flutti í Suðurgötu 1982 og hefur aldrei séð álíka tjón í götunni. Guðni tók þetta myndband í dag þegar hann skoðaði skemmdir.Þak fauk af í heilu lagi af einbýlishúsi á Siglufirði í morgun. Þar hafa hviður farið upp í 55 metra á sekún