„Það er nú til frasi sem heitir: „Ríki í Ríkinu“. Ætli Ölgerðin sé ekki bara: „Ríkið í Ríkinu,“ segir Arnar Sigurðsson, vínkaupmaður í Santé, þegar hann er spurður um stærð Ölgerðarinnar á smásölumarkaði með áfengi á Íslandi í gegnum ÁTVR.Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Ölgerðinni í síðustu viku vegna meintrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu og sagði stofnunin frá þessu í fréttatilkynningu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði ítarlega um meint brot Ölgerðarinnar í sjónvarpsþætti í gær.Arnar Sigurðsson hefur í gegnum árin verið gagnrýninn á ÁTVR á opinberum vettvangi. Hann er samkeppnisaðili ÁTVR og telur að gera eigi smásölu áfengis frjálsa á markaði á Íslandi. Arnar þekkir áfengismarkaðinn á Íslandi vel og er gagnrýninn á innkaupakerfi ÁTVR.Rætt er við Arnar