Ferðaþjónustan mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um innviðagjald á Gullna hringinn. Forstjóri Icelandair segir að það verði skaðlegt fyrir þjóðarbúið ef kostnaðarhækkanir dragi úr eftirspurn Íslands. Forsætisráðherra segir þetta hins vegar gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland. ÁÆTLAÐAR TEKJUR 6 TIL 7 MILLJARÐAR Á ÁRI Drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins á Gullna hringnum hafa verið í samráðsgátt og er samráði lokið. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins verði sex til sjö milljarðar á ári. Forsætisráðherra var spurð út í málið á Alþingi í gær og sagði þá að henni finnist þessi vegferð sem stjórnvöld séu nú að hefja geta verið gríðarlega spennandi tækifæri fyr